1. Ábyrgðaraðili – tilgangur og lagaskylda
Justitia félag laganema við Háskólann á Bifröst, kt. 600912-0890, (hér eftir vísað til sem félagið) er hagsmunafélag laganema við Háskólann á Bifröst. Félagið er ábyrgðaraðili, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (hér eftir vísað til sem PVL.), að skráningu, vistun og vinnslu persónuupplýsinga notenda vefsins.
2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 3. gr. PVL.
3. Söfnun og meðhöndlun á persónuupplýsingum
Vefurinn safnar engum persónugreinanlegum gögnum um notendur sína. Notendur geta því skoðað allt efni vefsins án þess að gefa upp persónulegar upplýsingar eins og nafn sitt eða netfang. Vefurinn notar einungis nauðsynlegar vafrakökur, sem notaðar eru í þeim tilgangi að tryggja að vefurinn starfi eðlilega. Þú getur slökkt á öllum kökum með því að breyta vafrastillingum þínum. Við bendum á að ef þú slekkur á öllum vafrakökum getur það komið niður á virkni vefsins.
4. Miðlun persónuupplýsinga til þriðja aðila
Félagið miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila.
5. Öryggi gagna
Öll gögn eru vistuð á öruggum stöðum í viðurkenndum tölvukerfum, þar sem áhersla er lögð á verndun persónuupplýsinga. Dæmi um öryggisráðstafanir eru m.a. aðgangsstýringar að kerfum.
6. Réttindi einstaklinga
Einstaklingur á rétt á því að fá upplýsingar um hvort unnið sé með persónuupplýsingar hans eður ei.
7. Endurskoðun á persónuverndarstefnu
Regluleg endurskoðun er á persónuverndarstefnu félagsins og kann hún að taka breytingum til samræmis við það.
8. Fyrirspurnir og kvartanir
Ef einhverjar spurningar eða ábendingar eru varðandi persónuverndarstefnu félagsins má hafa samband við [email protected]. Formaður félagsins er persónuverndarfulltrúi þess.
Yfirfarið 6. febrúar 2023.