Justitia

JUSTITIA

félag laganema á Bifröst

LÖG JUSTITIA FÉLAGS LAGANEMA VIÐ HÁSKÓLANN Á BIFRÖST

1. gr.

Félagið heitir Justitia – félag laganema við Háskólann á Bifröst. (hér eftir vísað til sem

,,félagsins”) Kennitala félagsins er 600912-0890.

2.  gr.

Lögheimili félagsins og varnarþing er Bifröst, 311 Borgarbyggð.

3.  gr.

Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna í hvívetna en einnig að: auka tengsl og samheldni meðal allra nemenda innan lagadeildar Háskólans á Bifröst. Að þjálfa félaga sína til lögfræðilegra viðfangsefna, rökfimi og mælskulistar. Að standa að útgáfu um lögfræðileg efni. Að auka þátttöku laganema Háskólans á Bifröst í almennri umræðu um lögfræðileg álitaefni í samfélaginu. Eingöngu er um félagasamtök að ræða en af því leiðir að enginn atvinnurekstur er hjá félaginu.

4. gr. Aðild

Allir nemendur sem greiða innritunargjöld vegna náms í lagadeild njóta félagsaðildar að félaginu. Nemendum er hvenær sem er frjálst að segja sig úr félaginu en slíkt skal gert skriflega. Háskólinn á Bifröst heldur utan um félagaskrá félagsins og sér um að uppfæra hana í upphafi hverrar annar.

5. gr. Stjórn félagsins

Stjórn félagsins skal skipuð sjö félagsmönnum, sem allir eru skráðir í nám við lagadeild. Stjórn skal skipuð formanni, ritara/varaformanni, fjármálastjóra, formanni ritnefndar, þremur meðstjórnendum en þar af skal einn vera fulltrúi nýnema og kjörinn að hausti. Meirihluti atkvæða ræður á stjórnarfundi en falli atkvæði jafnt fer formaður með oddaatkvæði. Stjórn telst ályktunarbær, ef meirihluti stjórnarmeðlima situr fund. Stjórn ritar firma félagsins.

6.  gr. Formaður

Formaður félagsins, í hans fjarveru ritari, hefur yfirumsjón með starfsemi félagsins og ber endanlega ábygð á málefnum þess. Formaður boðar til stjórnarfunda og gegnir stöðu fundarstjóra á þeim fundum. Formaður kemur fram fyrir hönd félagsins. Formaður situr í deildarráði lagadeildar Háskólans á Bifröst og einnig í stjórn nemendafélags Háskólans á Bifröst sem áheyrnarfulltrúi með tillögurétt. Formaður hefur prókúru.

7.  gr. Ritari/varaformaður

Ritari/varaformaður skal vera formanni innan handar og gegna starfi formanns í forföllum hans. Ritari starfar einnig sem ritari stjórnar og sér til þess að lög félagsins séu aðgengileg öllum nemendum með skýrum hætti og uppfærð til samræmis við samþykktar lagabreytingar hverju sinni.

8.  gr. Fjármálastjóri

Fjármálastjóri hefur umsjón með fjármálum félagsins og er ábyrgur fyrir bókhaldi þess. Fjármálastjóri hefur prókúru. Fjármálastjóri útbýr fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir lok septembermánaðar. Fjármálastjóri útbýr ársreikning fyrir hvert reikningsár sem skal samþykktur af tveimur skoðunarmönnum og síðan borinn undir stjórn félags til samþykktar. Ársreikningur skal vera aðgengilegur félagsmönnum viku fyrir aðalfund og svo birtur á vefsíðu félagsins eftir það.

9.  gr. Formaður ritnefndar og ritnefnd

Formaður ritnefndar skipar tvo aðila í ritnefnd. Ritnefnd skal skipuleggja og standa að útgáfu. Formaður ritnefndar gerir stjórn félagsins grein fyrir störfum nefndarinnar á stjórnarfundum.

10.      gr. Meðstjórnendur

Meðstjórnendur skulu vera þrír, þar af einn nýnemi sem kjörinn skal að hausti, og skulu þeir taka fullan þátt í störfum stjórnar.

11.  gr. Skoðunarmenn

Félagið skal hafa tvo skoðunarmenn. Stjórn félagsins skal tilnefna skoðunarmenn í upphafi starfsárs síns til að fara yfir ársreikning félagsins í lok starfsárs stjórnar.

12.  gr. Breytingar á stjórn

Ef svo ólíklega vill til að einhver stjórnarmeðlima segi af sér eða forfallist til lengri tíma þannig að hann geti ekki sinnt skyldum sínum samkvæmt lögum þessum, skal félagið þá þegar auglýsa eftir nýjum stjórnarmanni. Haldinn skal sérstakur fundur félagsins þar sem frambjóðendur kynna sig og skal því næst ganga til kosninga skv. lögum félagsins.

13. gr.

Stjórn Justitia skal kosin á aðalfundi félagsins ár hvert. Kjósa skal sérstaklega í öll embætti stjórnar. Auglýst skal eftir framboðum 3 vikum fyrir aðalfund. Framboðsfresti lýkur viku fyrir aðalfund.

14. gr. Kjörgengi og kosningaréttur

Kosningarétt hafa allir félagsmenn félagsins. Kjörgengi hafa allir félagsmenn er hyggja á áframhaldandi nám við skólann. Framboð skulu vera skrifleg og undirrituð eða staðfest af

frambjóðanda í gegnum póstbúnað Háskólans á Bifröst. Auglýsa skal eftir framboðum minnst þremur vikum fyrir aðalfund.

15. gr. Frambjóðendur

Ef frambjóðandi er einn í framboði telst sá aðili sjálfkjörinn. Falli atkvæði jafnt við kjör í embætti stjórnar félagsins sem og önnur embætti sem kosið er til á aðalfundi, ræður hlutkesti niðurstöðunni.

16. gr. Framboðsfrestur

Framboðsfresti lýkur sjö dögum fyrir aðalfund.

17. gr. Kynning frambjóðenda

Þegar framboðsfresti er lokið, skal frambjóðendum boðið að kynna sig á vefsíðu og samfélagsmiðlum félagsins. Þá skulu frambjóðendur kynntir með tölvupósti sem sendur skal til allra nemenda lagadeildar. Kjörseðill verður útbúinn svo fljótt sem verða má. Opna skal fyrir kosningar í þau embætti, sem fleiri en eitt framboð hefur borist í.

18. gr. Laus embætti

Ef ekki hafa borist framboð í öll laus embætti, fyrir sannanlega auglýstan aðalfund félagsins, skal stjórn félagsins heimilt að skipa í laus embætti úr hópi félagsmanna sem hafa kjörgengi, að því gefnu að embættið hafi áður sannanlega verið auglýst án árangurs.

19. gr. Kjörstjórn

Stjórn félagsins skal skipa þrjá aðila í kjörstjórn. Kjörstjórn skal sjálf kjósa sér formann. Einfaldur meirihluti ræður við afgreiðslu mála innan kjörstjórnar. Þeir sem sæti eiga í kjörstjórn hafa fyrirgert rétti sínum til framboðs í viðkomandi kosningum. Kjörstjórn skal skipa þremur vikum fyrir kosningar. Kjörstjórn skal skipuleggja kosningar og sjá um framkvæmd þeirra í samvinnu við stjórn félagsins. Kjörstjórn skal gæta hlutleysis og skal sjá til þess að öllum kröfum um öryggi og skilvirkni sé fullnægt og er hún bundin þagnarskyldu um framgang kosninga.

20. gr. Framkvæmd kosninga

Kosningar til embætta í stjórn félagsins, annarra embætta og trúnaðarstarfa á vegum félagsins, eru rafrænar og skulu fara fram með leynilegum hætti. Boða skal til kosninga með þriggja vikna fyrirvara. Kosningar skulu auglýstar með tryggilegum hætti, á vefsíðu félagsins, samfélagsmiðlum þess og með tölvupósti til nemenda, ella teljast kosningarnar ólögmætar. Framboðsfresti lýkur sjö dögum fyrir aðalfund. Kosningar skulu hefjast fyrir aðalfund og skal lokið á aðalfundi skv. auglýstri dagskrá.

21. gr. Úrskurðanefnd vegna kosninga

Stjórn félagsins skal skipa þrjá aðila í úrskurðanefnd vegna kosninga. Skal skipan nefndarinnar lokið þremur vikum fyrir kosningar. Þeir sem sæti eiga í nefndinni hafa fyrirgert rétti sínum til

framboðs í viðkomandi kosningum. Þeir sem skipaðir eru í úrskurðanefnd geta ekki einnig verið í kjörnefnd. Við val á aðilum í nefndina skal leitast til við að skipa aðila sem eru í meistarnámi við lagadeild. Nefndarmenn skulu gæta hlutleysis og eru bundnir þagnarskyldu um störf nefndarinnar umfram það sem gert hefur verið opinbert. Komi til þess að vafi leiki um hæfi einstakra nefndarmanna skal kærunefnd öll taka ákvörðun um hæfi viðkomandi. Skal nefndin hafa til hliðsjónar hæfisreglur stjórnsýslulaga við þá ákvörðun.

22. gr. Kærur til úrskurðanefndar

Kærur vegna kosninga skulu berast úrskurðanefnd skriflega, eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að kosningum lauk. Nefndin skal kveða upp úrskurð um efni kæru eigi síðar en viku eftir að kærufrestur rann út. Nefndin hefur endanlegt úrskurðarvald um efni kæru en viðkomandi er þó frjálst, eðli málsins samkvæmt, að fara með mál sitt fyrir dómstóla ef hann sættir sig ekki við niðurstöðu nefndarinnar. Komist nefndin að niðurstöðu um að misbrestur hafi verið á framkvæmd kosninga, í heild eða að hluta, skv. ákvæðum laga þessara um framkvæmd kosninga, skal kjörnefnd falið að boða til nýrra kosninga. Skulu framboð sem bárust vegna fyrri kosninga gild í slíkum kosningum. Skal boðað til nýrra kosninga eigi síðar en viku eftir að nefndin skilar úrskurði sínum. Að öðru leyti skulu sömu reglur gilda um framkvæmd aukakosninga og aðalkosninga.

23. gr. Starfstími stjórnar

Starfstími stjórnar félagsins og reikningsár skal vera á milli aðalfunda, þó aldrei lengur en til 31. maí á næsta almanaksári eftir að stjórn tekur við. Að skipunartíma loknum skal fráfarandi stjórn vera til staðar fyrir nýkjörna stjórn og leiðbeina henni fyrst um sinn.

24. gr. Úrsögn úr stjórn félagsins

Ef svo ólíklega vill til að stjórnarmaður hyggist segja af sér embætti skal viðkomandi senda skriflega tilkynningu þar um til formanns félagsins. Ef formaður hyggst segja af sér skal hann senda tilkynningu þar um til stjórnar félagsins.

25. gr. Yfirlýsing um vantraust og brottvikning

Stjórn félagsins getur lýst yfir vantrausti á stjórnarmann, sem kosinn hefur verið til að gegna embætti. Stjórnarmaður getur lýst yfir vantrausti á annan meðlim stjórnarinnar. Almennir félagsmenn geta lýst yfir vantrausti á einn eða fleiri meðlimi stjórnar félagsins eða stjórnina í heild sinni. Yfirlýsingar um vantraust skulu berast skriflega til formanns félagsins og skulu þær undirritaðar af 10% félagsmanna hið minnsta. Skal þá formaður boða til fundar allra félagsmanna vegna yfirlýsingarinnar, innan tveggja vikna frá móttöku hennar. Til fundarins skal boðað með að minnsta kosti viku fyrirvara. Ef komið hefur fram yfirlýsing um vantraust gagnvart forsmanni skal ritari boða til fundarins. Komi fram yfirlýsing um vantraust gagnvart stjórninni allri, skal hún fá óháðan aðila til þess að boða til og stýra fundi félagsmanna um meðferð slíkrar yfirlýsingar. Á slíkum fundi skulu þeir sem lýst hafa yfir vantrausti standa fyrir máli sínu og þeim sem slík yfirlýsing beinist að gefinn kostur á andsvari. Fundarmenn skulu

greiða atkvæði og sé yfirlýsing um vantraust samþykkt, af 2/3 hluta fundarmanna, tekur hún strax gildi.

26. gr. Verklag við stjórnarskipti

Áður en stjórn félagsins lýkur störfum sínum skal hún yfirfara lög þessi og athuga hvort úrbóta sé þörf. Lagabreytingar fara svo fram skv. lögum þessum. Fráfarandi stjórn skal halda fund með nýkjörinni stjórn innan 10 daga frá aðalfundi. Þar lætur hún nýja stjórn fá gögn er viðkoma félaginu. Fráfarandi stjórn er skylt að kynna störf félagsins ítarlega fyrir nýrri stjórn og undirstrika mikilvægi þess að farið sé eftir lögum félagsins í hvívetna.

27. gr. Tillaga stjórnar um slit félagsins

Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún þá sæta sömu meðferð og tillaga til lagabreytinga. Eignir félagsins ganga til nemendafélags Háskólans á Bifröst til varðveislu þegar félaginu er slitið þar til nemendur lagadeildar stofna annað félag í sama tilgangi sem telst arftaki félagsins og fær því eignir þess.

28. gr. Almenn atriði

Aðalfundur fer með æðsta ákvörðunarvald félagsins. Aðalfundur er helsti vettvangur samþykkta á breytingum sem gera á, reikningsskila og kosninga til trúnaðarstarfa. Aðalfundur skal haldinn í lok hvers starfsárs stjórnar félagsins, þó aldrei síðar en 31. maí. Til aðalfundar skal boða hið minnsta tveimur vikum fyrir áætlaðan fundardag ella telst hann ólögmætur. Í aðalfundarboði skal koma fram hvar og hvenær fundurinn er haldinn. Í aðalfundarboði skal birta dagskrá fundar auk upplýsinga um öll þau embætti sem óskað er eftir framboðum í. Aðalfundur telst löglegur ef til hans er boðað samkvæmt lögum félagsins. Einnig skal aðalfundur auglýstur á þeim samfélagsmiðlum sem félagið heldur úti.

29. gr. Dagskrá aðalfundar

Aðalfundur ályktar um hin ýmsu mál hverju sinni. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi að undanskildum samþykktum breytingum þar sem aukinn meirihluta þarf. Tillögur um breytingar á félaginu eða lögum þess skulu kynntar tveimur sólarhringum fyrir aðalfund, með tölvupósti til félagsmanna, á heimasíðu félagsins og samfélagsmiðlum þess. Heimilt er að bera upp breytingartillögur á aðalfundi.

30. gr. Fundarsköp aðalfundar

Formaður félagsins setur fundinn sem og stýrir umræðum. Til þess að tillaga á aðalfundi hljóti samþykki þarf samþykki meirihluta fundarmanna.

31. gr. Ritun aðalfundar

Fráfarandi ritari skrifar fundargerð aðalfundar.

32. gr. Tillaga að dagskrá aðalfundar

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. mál: Kjör fundarstjóra og
  2. mál: Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum sínum.
  3. mál: Stjórn félagsins leggur fram reikninga félagsins.
  4. mál: Kosning til stjórnar félagsins.
  5. mál:
  6. mál: Ný stjórn tekur við.
  7. mál: Önnur mál.

33. gr.

Aðeins félagsmenn hafa atkvæðisrétt og kjörgengi í stjórn og önnur hlutverk sem kosið er til á aðalfundi. Einfaldur meirihluti skal ráða niðurstöðum kosninga á aðalfundi.

34. gr. Lögbrú

Félagið skal standa að útgáfu tímarits um lögfræði og lagatengd málefni. Nafn tímaritsins er Lögbrú. Útgáfan skal fara fram á vefnum www.logbru.is sem félagið á og rekur.

35. gr. 

Félagsfund ber að halda hvenær sem stjórnin álítur nauðsynlegt. Þá skal halda félagsfund er tíundi hluti félagsmanna óskar þess.

36. gr.

Kynningarfundur fyrir fyrsta árs nema skal haldinn á haustdögum við upphaf skólaárs. Aðalmarkmið hans er að kynna félagið fyrir nemendum.

37. gr.

Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða lagabreytingafundi. Til þessara funda skal boðað skv. því sem lög þessi kveða á um. Atkvæði 2/3 hluta fundarmanna þarf til tillaga um lagabreytingu verði samþykkt. Stjórn er skylt að boða til lagabreytingafundar ef félagsmenn óska þess. Stjórn er heimilt að boða til slíks fundar að eigin frumkvæði. Allir félagsmenn hafa rétt til að koma með tillögur að lagabreytingum. Tillögum til lagabreytinga skal skilað til stjórnar eigi síðar en 3 dögum fyrir boðaðan fund. Tillögur skulu auglýstar á tryggilegan hátt. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum og skal efni hennar lýst. Heimilt er á aðalfundi eða lagabreytingarfundi að koma með breytingartillögu við löglega framkomna breytingartillögu svo lengi sem tillaga fundarins breytir ekki efni upphaflegu breytingartillögunnar. Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi eða lagabreytingafundi. Á lagabreytingafundi skal fylgja almennum fundarsköpum.

38. gr. Lagabreytinganefnd

Stjórn félagsins getur skipað lagabreytinganefnd til þess að sjá um endurskoðun á lögum félagsins ef stjórn telur þörf á því. Skal nefndin skipuð þremur aðilum. Störf nefndarinnar skulu hefjast í síðasta lagi tveimur mánuðum fyrir áætlaðan aðalfund. Lagabreytinganefnd starfar í samvinnu við stjórn félagsins og skal skila breytingatillögum til stjórnar félagsins hið minnsta fjórum vikum fyrir aðalfund. Stjórn félagsins tekur svo afstöðu til þess hvaða breytingatillögur verða lagðar fram. Skulu þær breytingatillögur sem stjórn ákveður að leggja fram sendar til félagsmanna um leið og stjórn félagsins hefur tekið afstöðu til þeirra, svo félagsmenn geti kynnt sér efni þeirra.

39. gr. Aðgengi laga

Lög þessi skulu ávallt vera aðgengileg á vefsíðu félagsins.

40. gr. Gildistaka

Lög þessi öðlast þegar gildi og falla þá eldri lög félagsins úr gildi.

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi félags laganema Háskólans á Bifröst þann 19. júní 2023.